Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
31.12.2008 | 16:55
þetta eru bölvaðir bjánar
ég ætla að leyfa mér að fullyrða að þessir skemmdavargar og ruslaralýður sem stóð fyrir þessu endurspegla ekki viðhorf almenns borgara á Íslandi. Það er til mikið af reiðu fólki á Íslandi og það réttilega, en allir venjulegir borgarar vita það að þetta er ekki leiðin til að ná fram réttlæti.
Þetta fólk (eflaust með einhverjum undantekningum) er ekki það fólk sem hefur farið verst útúr þessu ástandi, ég held að innst inni fagni þau ástandinu, því nú fá þau fleiri tækifæri til að skemma og valda öðrum skaða.
Lögreglan er í erfiðri stöðu því lýðurinn vill læti þeir vilja að lögreglan berji á sér og noti táragas. Bæði til að fá meira fjör í leikinn og eins til að verða sér út um samúð. En það má ekki láta þessa hryðjuverkamenn komast upp með þetta, það á að draga þá fyrir dóm og láta þá sæta refsingu.
Stefán Sigurðsson
Fólk slasað eftir mótmæli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)